Við styrkjum...
2011:
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
Mæðrastyrksnefnd Akraness
Samhjálp
Flugeldasýningu á Litla Hrauni
Flugeldasýningu á Kvíabryggju
Fyrri ár:
Í Reykjavík:

Saga
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er saga um baráttu fyrir
réttlátri og mannúðlegri félagsmálalöggjöf. Starf
nefndarinnar hefur haft mikil áhrif, jafnt á
almenningsálitið sem á löggjöfina og framkvæmd laganna.
Starf nefndarinnar hefur breyst í áranna rás og í takt
við tímann. Stöðugt fjölgar heimsóknum þeirra sem leita
til nefndarinnar. Það eru ekki lengur aðeins einstæðar
mæður, við hafa bæst karlmenn, bæði einstæðir og með
forsjá barna, en einnig er áberandi hve öryrkjum og
eldri borgurum hefur fjölgað á síðustu árum.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur flutti nýlega í nýtt húsnæði í Hátúni 12 b.
Afgreiðsla á mat, fatnaði o.fl. er á miðvikudögum kl.
14-17, en aðra virka daga er skrifstofan opin kl. 10-15.
www.maedur.is maedur(hjá)simnet.is

16-12-2009 -
Kristófer Kristófersson afhendir fulltrúa Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
gjafabréf frá Súper-flugeldum.
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Í Reykjanesbæ:
Velferðarsjóð
Suðurnesja
Markmið sjóðsins
eru þau að veita neyðaraðstoð umfram það sem Hjálparstarf kirkjunnar (HK) veitir
í innanlandsaðstoð sinni. Fjármagnið fer til úthlutunar á Suðurnesjum.
Keflavíkurkirkja heldur utan um reikninginn (hann er á kt. kirkjunnar) en sendir
reglulega fé af honum inn á reikning HK sem svo miðlar því aftur hingað á svæðið
í gegnum aðstoð. Uppgjör sjóðsins er því hluti af uppgjöri fjármála
Keflavíkurkirkju.
Með sjóðnum er fjármagni sem ella deilist á marga aðila safnað saman á einn
stað. Fyrir vikið gefst betri yfirsýn yfir þörfina og möguleikar til fjáröflunar
eru meiri en ella væri þegar kraftarnir dreifast.
Upplýsingar
Knattspyrnudeild
Njarðvíkur
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Á Akranesi:
Mæðrastyrksnefnd
Akraness

22-12-2009 -
Indriði Þórisson afhendir fulltrúa Mæðrastyrksnefndar Akraness
gjafabréf frá Súper-flugeldum.